Um tækið
Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Í tækinu gætu verið foruppsett bókamerki og tenglar á
netsíður þriðju aðila sem gætu gert þér kleift að nálgast
slíkar síður. Þær tengjast ekki Nokia og Nokia leggur hvorki
stuðning sinn við þær né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú nálgast
slík svæði skaltu huga að öryggi og efni.
Viðvörun:
Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara,
þarf að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu
þegar notkun þráðlausra tækja getur valdið truflun eða
hættu.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða
staðbundnar venjur, einkalíf og lögmæt réttindi annarra,
þ.m.t. höfundarrétt. Varnir vegna höfundarréttar geta
hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra mynda,
tónlistar og annars efnis.
Taktu öryggisafrit eða haltu skrá yfir allar mikilvægar
upplýsingar sem geymdar eru í tækinu.
6
Almennar upplýsingar
til notkunar í GSM 850, 900, 1800, 1900 MHz símkerfi.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók
þess vandlega, einkum upplýsingar um öryggi. Ekki má
tengja saman ósamhæf tæki.
Myndir í þessum bæklingi kunna að líta öðruvísi út en á skjá
tækisins.
Aðrar mikilvægar upplýsingar um tækið er að finna í
notendahandbókinni.