GPS-móttakari
Tækið er ekki með innbyggt GPS-loftnet. Til að hægt sé að
nota forrit sem krefjast GPS-tengingar þar samhæfan ytri
GPS-móttakara (aukabúnaður seldur sér).
Ytri GPS-móttakari notaður
1 Hladdu samhæfa GPS-móttakarann að fullu og kveiktu
á honum.
2 Komdu á Bluetooth-tengingu á milli tækisins og GPS-
móttakarans.
3 Stilltu GPS-móttakaranum þannig upp að ekki skyggi á
hann frá himni.
4 Opnaðu forritið Kort og veldu ytri GPS-móttakara.
Eftir að tækið er parað við ytri GPS-móttakara geta liðið
nokkrar mínútur þar til staðsetningarupplýsingar að
birtast í tækinu.
Einnig er hægt að nota Kort án GPS-móttakara til að fletta
í kortum, leita að heimilisföngum og stöðum og
skipuleggja leiðir.
48 Forrit