Nokia Map Loader
Með Nokia Map Loader forritinu í tölvunni er hægt að hlaða
kortum og raddleiðsagnarskrám niður af netinu.
Minniskort með nægu plássi verður að vera í tækinu. Nota
skal Kortaforritið og skoða kort a.m.k. einu sinni áður en
Nokia Map Loader forritið er tekið í notkun því að Nokia
Map Loader notar upplýsingar úr Kortaforritinu til að kanna
hvaða kortaútgáfum á að hlaða niður.
Farðu á www.nokia.com/maps og fylgdu leiðbeiningunum
til að setja upp Nokia Map Loader.
Kortum hlaðið niður með Nokia Map Loader
1 Tengdu tækið við tölvu með samhæfðri USB-snúru eða
Bluetooth-tengingu. Ef þú notar gagnasnúru skaltu
velja PC Suite sem USB-tengiaðferðina.
2 Opnaðu Nokia Map Loader í tölvunni.
3 Veldu heimsálfu og land eða svæði.
4 Veldu kort eða þjónustu og hladdu þeim niður og settu
þau upp í tækinu.
Forrit 47
Þú getur keypt leyfi fyrir leiðsögn og umferðarupplýsingar,
ferðahandbækur og hlaðið niður kortum á
þjónustuflipanum í Nokia Map Loader.