Um Kort
Ef kort eru tiltæk í tækinu eða á minniskorti geturðu flett í
þeim án nettengingar. Þegar þú flettir að svæði sem ekki
er á kortum sem hlaðið hefur verið niður í tækið er korti af
svæðinu sjálfkrafa hlaðið niður um internetið. Hugsanlega
er farið fram á að þú veljir aðgangsstað sem nota á til að
tengjast.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar
um símkerfi þjónustuveitunnar. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Einnig er hægt að nota Nokia Map Loader hugbúnaðinn til
að hlaða niður kortum í tækið. Til að setja Nokia Map
Loader upp á samhæfri tölvu, sjá www.nokia.com/maps.
Veldu
Valmynd
>
Forrit
>
Kort
og svo úr eftirfarandi:
Síðasta kort — Birtir það kort sem síðast var opið.
Finna heimilisf. — Leita að tilteknu heimilisfangi.
Vistaðar staðs. — Leitaðu að stað sem þú hefur vistað í
tækinu.
Nýleg. staðsetn. — Birtu staðsetningar sem þú hefur flett
í gegnum.
Núv. staðsetn. — Skoðaðu núverandi staðsetningu þína,
ef GPS-tenging er til staðar.
Skipuleggja leið — Leiðaráætlun.
46 Forrit
Viðbótarþjón. — Kauptu leyfi fyrir leiðsögn
Stillingar — Tilgreindu stillingarnar.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að
einhverju leyti. Aldrei skal treysta eingöngu á kort sem
hlaðið hefur verið niður til notkunar með þessu tæki.