
Margmiðlunarskilaboð
Margmiðlunarskilaboð geta innihaldið texta, myndir og
hljóð- eða myndskeið.
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti og
birt margmiðlunarskilaboð. Útlit skilaboða getur verið
breytilegt eftir móttökutækinu.
Þráðlausa símkerfið kann að takmarka stærð MMS-
skilaboða. Ef myndin sem bætt er inn fer yfir þessi mörk
gæti tækið minnkað hana þannig að hægt sé að senda
hana með MMS.
Mikilvægt: Fara skal með gát þegar skilaboð eru opnuð.
Skilaboð geta innihaldið skaðlegan hugbúnað eða skaðað
tölvuna eða tækið á einhvern annan hátt.
Þjónustuveitan gefur upplýsingar um þjónustu og áskrift
að margmiðlunarþjónustunni (MMS).