
Hleðsla rafhlöðunnar
Rafhlaðan kemur hlaðin að hluta til frá framleiðanda. Ef
tækið sýnir að rafhlaðan sé að tæmast skaltu gera
eftirfarandi:
Tækið tekið í notkun 11

1 Tengdu hleðslutækið við innstungu.
2 Tengdu hleðslutækið við tækið.
3 Þegar tækið sýnir að rafhlaðan sé fullhlaðin skaltu taka
hleðslutækið úr sambandi við tækið og síðan úr
innstungunni.
Ekki þarf að hlaða rafhlöðuna í tiltekinn tíma og hægt er
að nota tækið á meðan það er í hleðslu. Ef rafhlaðan er
alveg tóm geta liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn
birtist á skjánum eða þar til hægt er að hringja.