SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður
en rafhlaðan er fjarlægð.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir
skemmdum ef það er rispað eða beygt svo fara skal varlega
þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
10 Tækið tekið í notkun
1 Snúðu bakhlið tækisins að þér, lyftu bakhliðinni og
taktu hana af (1).
2 Ef rafhlaðan er í skaltu taka hana úr (2).
3 Ýttu festingu SIM-kortsins til að taka hana úr lás (3) og
opnaðu hana svo (4).
4 Settu SIM-kortið í festinguna þannig að snertiflöturinn
snúi niður (5) og lokaðu henni svo (6).
5 Ýttu festingunni aftur til að læsa henni (7).
6 Komdu rafhlöðunni fyrir (8) og settu bakhliðina á sinn
stað (9).