Aukabúnaður
Viðvörun:
Aðeins skal nota rafhlöður, hleðslutæki og aukabúnað sem Nokia hefur samþykkt til
nota með þessari tilteknu tegund. Ef notaðar eru aðrar gerðir gæti öll ábyrgð og
samþykki fallið niður og slíkri notkun getur fylgt hætta. Sérstaklega getur notkun
ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja valdið eldhættu, sprengingu, leka eða haft
aðra áhættu í för með sér.
Seljandi símans veitir upplýsingar um fáanlegan aukabúnað sem samþykktir eru til
notkunar. Þegar aukabúnaður er tekinn úr sambandi skal taka í klóna, ekki leiðsluna.