
Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá Nokia
Notaðu alltaf rafhlöður frá Nokia til að tryggja öryggi þitt. Til að ganga úr skugga um
að þú notir ósvikna Nokia rafhlöðu skaltu kaupa hana af viðurkenndri
þjónustumiðstöð eða söluaðila Nokia og skoða heilmyndarmiðann líkt og lýst er í
eftirfarandi skrefum:
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki fullkomin trygging fyrir
því að rafhlaðan sé ósvikin. Hafir þú minnstu ástæðu til að ætla að rafhlaðan þín sé
ekki ósvikin Nokia rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til
viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila Nokia og leita aðstoðar. Ef ekki er
hægt að staðfesta sannvottunina skaltu skila rafhlöðunni til söluaðilans.