Nokia 7020 - Umhirða og viðhald

background image

Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.

Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.

Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið

steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og

leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.

Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.

Hreyfanlegir hlutir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.

Vöru- og öryggisupplýsingar 57

background image

Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu

rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.

Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu

hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.

Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.

Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð

getur skemmt innri rafrásaspjöld og fíngerðan búnað.

Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess

að þrífa tækið.

Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið

í veg fyrir að þeir vinni rétt.

Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet.

Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og

kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.

Nota skal hleðslutæki innandyra.

Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum

og dagbókaratriðum.

Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með því

að slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.

Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða annan

aukabúnað. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda

þjónustuaðila til lagfæringar.