
Endurvinnsla
Skilaðu alltaf notuðum raftækjum, rafhlöðum og umbúðum á viðeigandi sorp- og
endurvinnslustöð. Með því stuðlar þú að takmarkaðri losun á úrgangi og
endurvinnslu. Nánari upplýsingar um safnstaði eru veittar hjá söluaðilum,
viðkomandi yfirvöldum á staðnum, framleiðslueftirliti í viðkomandi landi eða
umboðsaðila Nokia á staðnum. Kannaðu hvernig þú getur endurunnið vörur frá Nokia
á www.nokia.com/werecycle eða á www.nokia.mobi/werecycle ef þú skoðar síðuna
í farsíma.
58 Vöru- og öryggisupplýsingar

Merkið sem sýnir yfirstrikaða ruslafötu og er á vörunni, rafhlöðunni, bæklingnum eða
umbúðunum táknar að fara verður með allan rafbúnað og rafeindabúnað, rafhlöður
og rafgeyma á sérstaka staði til förgunar að líftíma vörunnar liðnum. Þessi krafa á við
innan Evrópusambandsins. Hendið þessum vörum ekki með heimilisúrgangi. Nánari
upplýsingar um umhverfismál er að finna í Eco-yfirlýsingum fyrir vörur á
www.nokia.com/environment.