Nokia 7020 - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar
Mikilvægt:
Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og

notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu

bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði að koma á

neyðarsímtölum á farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru valin.

Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu

á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort nægilegur sendistyrkur

sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:

Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða flugsniði í virkt snið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið

reiðubúið fyrir símtöl.

3

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru

breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega og

kostur er. Þráðlausa tækið getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta

símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.

62 Vöru- og öryggisupplýsingar