Nokia 7020 - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi
Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum

tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst vera

á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug á slíkum

svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og jafnvel

dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við eldsneytisdælur á

bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun útvarpsbúnaðar í

eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing eldsneytis fer fram,

efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði þar sem sprengihætta er

Vöru- og öryggisupplýsingar 61

background image

mikil eru oftast vel auðkennd, en þó ekki alltaf. Þau eru m.a. neðri þilför skipa, aðstaða

til efnaflutninga eða geymslu og svæði þar sem efni líkt og korn, ryk eða málmagnir

eru í lofti. Þú ættir að kanna það hjá framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt

og própan eða bútan) til að ákvarða hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan hátt

nálægt þeim.