Upplýsingar um vottun (SAR)
Þetta farsímatæki uppfyllir viðmiðunarreglur um áhrif af útvarpsbylgjum.
Þráðlausa tækið er útvarpssendir og móttökutæki. Það er hannað með tilliti til
leyfilegra marka um áhrif af útvarpsbylgjum sem alþjóðlegar viðmiðunarreglur mæla
með. Þessar viðmiðunarreglur voru þróaðar af óháðu vísindastofnuninni ICNIRP og
innihalda öryggismörk sem ætlað er að tryggja öryggi allra, óháð aldri og heilsufari.
Í viðmiðunarreglum um útvarpsbylgjur þráðlausra tækja er notuð mælieiningin SAR
(Specific Absorption Rate). Efri mörk SAR, samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP, eru
2,0 vött/kílógramm (W/kg) að meðaltali á hver 10 grömm af líkamsvef. Mælingar á
SAR eru gerðar í hefðbundnum notkunarstöðum þegar tækið sendir af mesta leyfða
styrk á öllum mældum tíðnisviðum. Raunverulegur SAR-styrkur tækis í notkun getur
verið lægri en hámarksgildið, þar sem tækið er hannað til að nota aðeins þann styrk
sem þarf til að ná sambandi við símkerfið. Fjöldi þátta hafa áhrif á styrkinn, t.d. hversu
langt notandinn er frá grunnstöð.
Samkvæmt viðmiðunarreglum ICNIRP er hæsta SAR-gildi fyrir notkun tækisins við eyra
Notkun aukahluta og aukabúnaðar getur valdið því að SAR-gildið sé annað. SAR-gildi
kunna að vera breytileg milli landa sökum mismunandi upplýsingaskyldu, krafna og
tíðnisviðs. Viðbótarupplýsingar um SAR má finna í upplýsingum um vörur á
www.nokia.com.